REYNSLUSÖGUR

„Upplifun er einstaklingsbundin og niðurstöður geta verið mismunandi.“

 

Þetta segja viðskiptavinir okkar

★★★★★
„Ég finn að ég get tekist betur á við daginn og er ekki eins verkjaður.“
Stefán Björgvin hefur glímt við slitgigt frá þriggja ára aldri og gengist undir um 20 aðgerðir á hnjám. Árið 2019 fór hann einnig að finna fyrir verkjum og stirðleika í höndum sem takmörkuðu hreyfigetu hans. Í júní 2025 kynntist hann olíunum frá ZEN Iceland og segist í fyrsta sinn í mörg ár hafa getað rétt úr fingrunum og kreppt hnefana án vandkvæða. Síðan þá hefur hann notað bæði dag og næturformúluna daglega og lýsir jákvæðri reynslu af þeim. Frásögnin byggir á persónulegri reynslu Stefáns og felur ekki í sér staðfestingu á virkni olíunnar við slitgígt.
★★★★★

„Mér finnst ég vera skýrari í hugsun og koma meiru í verk.“

Reynsla Önnu Kristínar af ZEN Iceland

Ég er með ADHD og hugurinn er oft út um allt. Eftir að hafa notað dagformúluna í nokkra daga samfleytt fann ég fyrir jákvæðri breytingu.

Mín upplifun er sú að ég hafi meiri einbeitingu og orku yfir daginn. Mér finnst ég skýrari í hugsun, ná betri fókus og koma meiru í verk.

Það sem stendur mest upp úr hjá mér er tilfinningin að hafa meiri orku og skýrari hugsun til að takast á við verkefni dagsins. Á sama tíma finn ég fyrir meiri ró og yfirvegun, sem gefur mér meira jafnvægi og yfirsýn í daglegu lífi.

Frásögnin lýsir persónulegri reynslu Önnu og felur ekki í sér staðfestingu á virkni olíunnar við ADHD.